FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Hugmynd að nýju framtíðarskipulagi á Breið

Breið þróunarfélag í samstarfi við Brim hf, Akraneskaupstað og Arkitektafélag Íslands mun kynna niðurstöður hugmyndasamkeppni á Breið mánudaginn 27.júní kl. 15.00 í Hafbjargarhúsinu að Breiðgötu 2C á Akranesi.

 

Niðurstöður dómnefndar í hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag verða kynntar en alls bárust 24 tillögur í keppnina sem var öllum opin.

 

Formaður dómnefndar mun fara yfir tillögurnar en hægt verður að sjá allar tillögurnar á staðnum auk þess sem þær verða til sýnis á heimasíðu Arkitektafélag Íslands og Breiðar Þróunarfélags.

 

Öll velkomin!