FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Lifandi samfélag við sjó hlýtur fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um framtíð Breiðarinnar á Akranesi

Tillaga frá arkitektastofunni Arkþing/Nordic og Eflu verkfræðistofu hlaut fyrstu verðlaun í veglegri hugmyndasamkeppni um framtíð Breiðarinnar á Akranesi en verðlaunaafhending fór fram í Hafbjargarhúsinu á mánudaginn.

Tillagan ber heitið Lifandi samfélag við sjó og gerir ráð fyrir blandaðri byggð fjölbreyttra íbúða og atvinnusvæðis þar sem nýbyggingar tengjast endurnýttum eldri byggingum. Hugmyndir eru að útivistar- og þjónustusvæðum við ströndina sem eru tengd innbyrðis og við atvinnu- og íbúðasvæði með strand- og göngustígum. Þá eru hugmyndir um að setja hótelog baðlón sunnarlega á svæðið sem býður upp á áhugaverða möguleika.

Fyrstu verðlaunahafar hljóta 15 milljónir króna en verðlaunafé alls nemur 25 milljónum króna.

Breiðin Þróunarfélag í samstarfi við Brim hf, Akraneskaupsstað og Arkitektafélag Íslands efndi til  samkeppninnar í janúar sl. með það að markmiði að byggja upp Breiðina og styðja við atvinnuppbyggingu og nýsköpun á Akranesi til framtíðar. Samskeppnin var mjög umfangsmikil en samstals bárust 24 tillögur frá samtals yfir 50 aðilum og að miklum meirihluta frá alþjóðlegum arkitekta, hönnunar og skipulagsstofum.

Í niðurstöðum dómnefndar um verðlaunatillöguna segir:

Lifandi samfélag við sjó er látlaus og skýr tillaga sem leggur til blandaða uppbyggingu á Breiðinni. Atvinnusvæði er byggt upp ofan við við Steinsvör og núverandi byggingar eru endurnýttar. Útisvæði við vörina virkar sannfærandi með veitingasölu og annari starfsemi. Íbúðabyggðin er fjölbreytt en þróa mætti húsgerðir enn frekar með tilliti til þéttleika og skjólmyndunar. Strandstígur liggur umhverfis nýju byggðina og tengist fjölbreyttri uppbyggingu og afþreyingu við sjóinn. Annar stígur liðast í gegnum hverfið frá norðri til suðurs og tengist leiksvæðum, gróðurhúsi og veitingatorgi. Staðsetning hótels og baðlóns sunnarlega á nesinu virkjar það svæði vel og býður upp á spennandi þróunarmöguleika. Styrkur tillögunar er einfaldleiki með skýru samgönguneti og góðum tengingum við sjóinn. Staðsetning allra lykilþátta er skynsamleg og virðist áreynslulaus. Tillagan er jarðbundin og raunsæ og bíður upp á mikla mögleika til frekar þróunar. Mannvirki við Skarfavör og Steinsvör sem ganga í sjó fram þarf að skoða með tilliti til ágangs sjávar.

Önnur verðlaun hlaut tillaga án titils frá finnsku arkitektastofunni Muuan með aðstoð frá Arkitektúr Verkfræði Hönnun og þriðju verðlaun Breiðin til framtíðar frá hollensku hönnurstofunni Superworld VOF. Þá hlutu hlutu tvær tillögur viðurkenningarsem athyglisverð tillaga en þær voru annarsvegar frá íslensku arkitektastofunni HJARK og portúgölsku hönnunarstofunni Sastudio og hinsvegar frá  dönsku arkitektastofuni Atelier for Byers Rum í samvinnu við DSA ARK STUDIO og Dögg Design.

Dómnefnd skipuðu þau Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, formaður, Inga Jóna Friðgeirsdóttir, stjórnarmaður í Breiðinni, Páll Hjaltason, arkitekt, FAÍ, Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, Helgi Bollason Thoroddsen, arkitekt, FAÍ, Ólafur Melsted, landslagsarkitekt, FÍLA og Heba Hertervig, arkitekt, FAÍ.

Verðlaunatillögur ásamt yfirliti yfir allar tillögurnar eru til sýnis í Hafbjargarhúsnæði Brims neðst á Breiðinni. Sýningin verður opin almenningi án endurgjalds í sumar.

Breiðin þróunarfélag er í eigu Brims hf. og Akraneskaupstaðar.

Verðlaunatillögurnar má skoða á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar. 

Heimild: Hönnunarmiðstöð