FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Afmælisbarn dagsins, Björn Jóhannsson

Sjáið Björn. Hann á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.

Björn útskrifaðist frá Gloucestershire á Englandi árið 1993. Vinnustaður Björns er Urban Beat þar sem vandað er til verks við að teikna garða íslendinga.

Í tilefni dagsins var Björn spurður spjörunum úr.

  • Skemmtilegustu verkefnin? Þrívíðar teikningar og kennsla á Sketchup forritið fyrir Iðuna og sænskar arkitektastofur.
  • Uppáhalds tréð? Jólatréð í geymslunni minni. Ég tek það úr kassanum, slétti úr greinunum og sting því í samband.
  • Uppáhalds bíómynd? Engin í augnablikinu en hef grun um að það verði Deliverance frá 1972 þegar ég verð búinn að sjá hana..
  • Falin perla hönnuð af landslagsarkitekt, veist þú um svoleiðis? Já, en ef ég segi væri hún ekki falin lengur!
  • Hvert er uppáhalds útivistarsvæðið þitt? Miðhálendið og óbyggðu firðirnir á Vestjörðum.
  • Fallegasti staður á landinu? Þar sem konan mín stendur hverju sinni, oftast Kópavogur.
  • Uppáhalds tónlistarmaður? Það breytist oft en í augnablikinu keppa Clapton, Adele og Dan Reynolds í Imagine Dragons um hnossið.

 

Þetta var Björn. Hann á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta og kemur reglulega út úr skápnum sem kántrínörd og hefur alltaf langað til að kunna á harmonikku. Verið eins og Björn