Afmælisbarn dagsins, Auður Sveinsdóttir
Sjáið Auði. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.
Auður útskrifaðist frá NLH (Norges Landbrukshögskole) árið 1973. Auður hefur komið víða við, margir vinnustaðir og mörg verkefni – sum krefjandi, erfið, ögrandi og skemmtileg.
Í tilefni dagsins var Auður spurð spjörunum úr.
- Skemmtilegustu verkefnin? Að fá tækifæri til að miðla um verðmæti og sérstöðu íslensks landslags og menningu.
- Uppáhalds tréð og afhverju? Birkiskógur- og undirgróðurinn er í uppáhaldi.
- Uppáhalds bíómynd? Zorba – er eftirminnileg frá því rétt eftir miðja síðustu öld. Falin perla hönnuð af landslagsarkitekt, veist þú um svoleiðis? Garðurinn hans Reynis Vilhjálmssonar.
- Hvert er uppáhalds útivistarsvæðið þitt? Hvað er útivistarsvæði?? núna er Reykjafellið í uppáhaldi.
- Fallegasti staður á landinu? Sérhver staður hefur sín sérkenni – Vonarskarð sá ég í sumar.
- Uppáhalds tónlistarmaður? hmm erfitt- Ellý Vilhjálms gleður sálina!
Þetta var Auður. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta. Verið eins og Auður.