Haustfundur hinn fyrsti
Það er kraftmikill vetur framundan hjá FÍLA og fyrsti viðburður haustsins er nú þegar í augsýn. Þann 11. október næstkomandi kl 20.00 verður haldinn opinn umræðufundur í sal Eflu, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík til þess að taka stöðu ýmissa mála hjá FÍLA og setja í farveg frekari vinnu. Málefnin sem við munum taka á eru eftirfarandi:
- Menntamál / endurmenntun
- Tækniþróun
- Sýnileiki og kynningarmál – m.a uppfærsla á heimasíðu og instagramsíðu
- Samstarf við aðra
- Starfsvið og eftirspurn
- Áhugi félagsmanna um fagferð erlendis
Vonumst til að sjá sem flest!