FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Afmælisbarn dagsins, Sigurborg Ósk Haraldsdóttir

Sjáið Sigurborgu. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.

Sigurborg útskrifaðist frá Arkitektur- og designhögskolen i Oslo árið 2012 með Msc. gráðu í Landslagsarkitektúr. Sigurborg vinnur í borgarstjórn Reykjavíkur við að breyta ferðavenjum, gera borgina grænni og rífast við gamla kalla.

Í tilefni dagsins var Sigurborg spurð spjörunum úr.

  • Skemmtilegastu verkefnin? Endurhanna götur með fullt af gróðri.
  • Hefurður farið í „bannað að stíga á strik“ á árinu? Stíg aldrei á strik.
  • Uppáhalds bíómynd? Cloud Atlas.
  • Framúrskarandi L.ark/ark/hönnuður? Kathryn Gustafsson.
  • Uppáhalds útivistarsvæði á landinu? Hofsvíkurfjaran á Kjalarnesi.
  • Fallegasti staður á landinu? Matarborðið þegar öll fjölskyldan situr við það.
  • Uppáhalds tónlistarmaður? Allar konur sem þora að láta rödd sína heyrast.
  • Ef þú mættir ráða öllu, hvaða verkefni yrði ráðist í næst? Borgarlínu. 
  • Ertu byrjuð að skreyta? Já maður!

 

Þetta var Sigurborg. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta og hún ELSKAR Star Trek.Verið eins og Sigurborg.