FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

JAN GEHL – Mannlíf milli húsa, fyrirlestur í Gamla bíói fimmtudaginn 15. nóvember

Hinn þekkti danski arkitekt Jan Gehl heldur fyrirlestur í Gamla bíói fimmtudaginn 15. nóvember næstkomandi í tilefni af útgáfu íslenskrar þýðingar bókarinnar Mannlíf milli húsa (Livet mellem husene).

Bókin, sem kom fyrst út árið 1971 í Kaupmannahöfn, fól í sér uppgjör við kaldranalegar borgir og íbúðahverfi eftirstríðsáranna. Síðan eru liðin tæp fimmtíu ár en bókin á ennþá fullt erindi eins og Jan Gehl kemst sjálfur að orði: „Undanfarnir áratugir hafa sýnt svo ekki verður um villst að viðleitnin til þess að styrkja mannlíf í borgum og byggðum er enn ofarlega á baugi. Samfélagsþróun og allir heimsins rafrænu miðlar hafa ekki dregið úr mikilvægi þess að fólk komi saman, nema síður sé.“

Í fyrirlestrinum setur Gehl viðfangsefni bókarinnar í samhengi við þróun borga og byggða í samtímanum. Einnig fjallar hann um aðferðarfræðina sem bókin sprettur úr og áhrif hennar víða um heim. Að loknum fyrirlestri gefst tími fyrir spurningar og umræður.

Léttar veigar í boði danska sendiráðsins.
Allir velkomnir.

ÚRBANISTAN, sem gefur bókina út, stendur fyrir viðburðinum í samstarfi við Reykjavíkurborg, Skipulagsstofnun, Listaháskóla Íslands, Klasa, Icelandair Hotels, Arkitektafélag Íslands, Félag íslenskra landslagsarkitekta, SAMARK og Hönnunarmiðstöð.

Viðburðurinn á facebook