FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Afmælisbarn dagsins, Berglind Guðmundsdóttir

Sjáið Berglindi. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.

Berglind lærði fagið í KVL í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan árið 1997 og vinnur í dag hjá Hafnarfjarðarbæ á Umhverfis- og skipulagssviði. Berglind staðfestir að deiliskipulögin rokka svo ekki sé nú talað um breytingu á aðalskipulagi. Engu að síður er það Gladys Knight sem kemur henni í stuð.

Í tilefni dagsins varBerglind spurð spjörunum úr.

  • Áttu þér uppáhalds tré? Birki og þá sérstaklega Bæjarstaðabirkið, hvíti börkurinn og beini stofninn gerir þetta tré svo einstaklega fagurt.
  • Hvaða bók er á náttborðinu? Bernskubók Sigurðar Pálssonar.
  • Er einhver landslagsarkitekt / arkitekt sem þér þykir skara fram úr? Frederick Olmsted og Bjarke Ingels.
  • Hver er fallegasti staður á landinu? Kaldalón á Snæfjallaströnd.
  • Hvert er uppáhalds útivistarsvæðið þitt? Garðurinn heima í Hafnarfirði.
  • 30 x 30 eða 40 x 40? Ég er þrjátíu þrjátíu týpan.

 

Þetta var Berglind. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.  Verið eins og Berglind.