FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Sipulagsdagurinn – skipulag fyrir nýja tíma

    Tillaga ASK Arkitektar

Skipulagsdagurinn, árleg ráðstefna Skipulagsstofnunar um skipulagsmál og þróun þeirra, fer fram í Salnum í Kópavogi föstudaginn 12. nóvember næstkomandi kl. 9-16.

Yfirskrift Skipulagsdagsins í ár er Skipulag fyrir nýja tíma og verður sjónum beint sérstaklega að þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir með tilliti til lífsgæða, samgöngumiðaðs skipulags, sjálfbærni í byggðu umhverfi og aðlögunar vegna loftslagsbreytinga og náttúruvár. Ráðstefnan er að vanda haldin í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga.

 

Nánari dagskrá og skráning er á vef Skipulagsstofnunar.

 

Viðburðinum verður einnig streymt á Facebook-síðu Skipulagsstofnunar. Boðið verður upp á hádegisverð auk þess sem móttaka verður í lokin með léttum veitingum. Gestir eru hvattir til að nýta sér vistvæna ferðamáta á viðburðinn en fjöldi strætóleiða stoppar við Salinn.

 

 

Kveðja,

Skipulagsstofnun

______________________________________
Skipulagsstofnun – National Planning Agency
Borgartún 7b, 105 Reykjavík, Ísland – Iceland
sími 595 4100
skipulag@skipulag.is
www.skipulag.is
www.facebook.com/skipulagsstofnun