Haustfundur FÍLA
Haustfundur FÍLA verður haldinn þriðjudaginn 29. okt. kl. 20.00
Fundurinn verður haldinn í sal Garðyrkjufélagsins, Síðumúla 1 (Gengið inn Ármúlamegin). Húsið opnar kl. 19.45.
Dagskrá kvöldsins
- Kynning frá Garðsöguhópnum á greinargerðinni – Garðar – lifandi minjar – sem kom út fyrr í sumar. Hvernig koma landslagsarkitektar að friðun og hvað á að vernda við endurgerð gamalla garða – ný verkefni – ný sóknarfæri.
- Pétur Ármannsson arkitekt frá Minjastofnun verður með innlegg og segir frá vinnu við undirbúning friðlýsingar nokkurra gamalla garða.
- Sagt frá Common Ground ráðstefnunni og IFLA fundi Osló í september – frásagnir frá IFLA fulltrúa FÍLA af stjórnarfundi og frásagnir nokkurra fulltrúa á ráðstefnunni.
Boðið verður upp á veitingar
Hér má sjá auglýsingu Haustfundur FÍLA_