Afmælisbarn dagsins, Dagný Bjarnadóttir
Sjáið Dagný. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.
Dagný lærði fagið í Konunglega landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan árið 1992. Hún vinnur í DLD í Toppstöðinni með verkefni sem spanna frá skipulagi til hönnunar í ýmsum skala og þykir henni skemmtilegast að vinna verkefni þar sem sköpunargleði fær að blómstra.
Í tilefni dagsins var Dagný spurð spjörunum úr.
- Hver var fyrsta platan sem þú keyptir þér? Pippi Långströmp
- Uppáhalds íslenski hönnuðurinn? Örn Smári Gíslason grafískur hönnuður
- Uppáhalds íslenski rithöfundurinn? Jón Kalmann og Kristín Eiríksdóttir í augna blikinu
- Helstu áhugamál? Hestamennska og útivist
- Föstudagsdrykkurinn? Grænn með dassi af rauðrófu -og gulrótarsafa
- Hvað dettur þér fyrst í hug þegar þú heyrir orðið „mosi“? Það er rosa rosa gott að liggja í mosa
- Fallegasti staður á landinu? Ekki hægt að nefna einn, en hestaferð að Arnarfelli hinu mikla kemur upp í hugann
Þetta var Dagný. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta. Verið eins og Dagný.