Afmælisbarn dagsins, Anders Terp
Sjáið Anders. Hann á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.
Anders lærði fagið í KVL í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan árið 2009 og vinnur í dag hjá Landslagi ehf.
Í tilefni dagsins var Anders spurður spjörunum úr.
- Áttu þér uppáhalds tré? Hjartartré.
- Er einhver landslagsarkitekt / arkitekt sem þér þykir skara fram úr? Le Nôtre, Corbusier, Koolhaas, Sanaa, Sleth.
- Hvert er uppáhalds útivistarsvæðið þitt? Dyrehaven í Lyngby.
- Fallegasti staður á landinu? Þingvallavatn.
- Áttu þér uppáhalds tónlistarmann? Akkurat núna; Mica Levi, Mark Fell, Gyða Valtýsdóttir.
- Uppáhalds bíómynd? Paris, Texas (Wim Wenders)
Þetta var Anders. Hann á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta. Verið eins og Anders.