Aðalfundur FÍLA 2024
Góðan daginn kæru FÍLA félagar,
Boðað er til 46. aðalfundar Félags íslenskra landslagsarkitekta þriðjudaginn 30.apríl 2024
Fundurinn verður haldinn í Herðubreið, fundarsal í Eflu, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík (gengið inn á annarri hæð gegnt Heiðrúnu) kl. 17 – 19.
Dagskrá fundarins:
1. Ársskýrsla stjórnar.
2. Skýrslur nefnda og IFLA fulltrúa.
3. Kynning á nýjum félögum.
4. Lagðir fram skoðaðir reikningar.
5. Ársgjöld félaga.
6. Lagabreytingar.
7. Kosning stjórnar.
8. Kosning IFLA fulltrúa og fulltrúa í fulltrúaráð Hönnunarmiðstöðvar.
9. Kosning félagskjörinna reikningsskoðenda.
10. Kosning í nefndir.
11. Önnur mál.
Athugið að tillögur til aðalfundar verða að hafa borist til stjórnar 20 dögum fyrir aðalfund.