Afmælisbarn dagsins, Ingvar Ívarsson
Sjáið Ingvar. Hann á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.
Ingvar útskrifaðist árið 2007 frá Kaupmannahafnar og vinnur á Landslagi ehf þar sem hann snertir allan skalann í umhverfishönnun, ferðamannastöðum, stofnanalóðum og einkalóðum svo dæmi séu tekin. Kemur einnig töluvert að skipulagsmálum með bróður sínum Ómari.
Ingvar er tvíburi og krabbi, á tvíbura, einbura og hund.
Í tilefni dagsins var Ingvar spurður spjörunum úr.
- Skemmtilegustu verkefnin? Ferðamannastaðirnir eru mjög skemmtileg og krefjandi verkefni.
- Uppáhalds tréð? Gamla góða gullregnið í garðinum mínum er geggjað þegar sá gállinn er á því.
- Hvaða bók er á náttborðinu? Það er ljóðabókatrílógían Mar, Bleikir himnar og Bygging trjáhýsa í íslensku birki eftir Þórhall vin minn Barðason. Er að bisa við að melta snilldina.
- Falin perla hönnuð af landslagarkitekt, veist þú um svoleiðis? Lystigarður Akureyrar er frábær staður með langa og merkilega sögu. Garðurinn er stofnaður (og hannaður) af framsýnum frumkvöðlum og hugsjónarfólki á þessu sviði þó ekki hafi þau verið landslagsarkitektar.
- Hvert er uppáhalds útivistarsvæðið þitt? Hlíðarfjall á páskum
- Fallegasti staður á landinu? Ég er svo mikill heimamaður að ég verð að segja Akureyri og ég ætla ekki einu sinni að byrja að tala um veðrið;-).
- Uppáhalds tónlistarmaður? Nýdönsk og Fjóla Sveinmarsdóttir.
Þetta var Ingvar. Hann á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta. Verið eins og Ingvar.