Afmælisbarn dagsins, Kristbjörg Traustadóttir
Sjáið Kristbjörgu. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.
Kristbjörg lærði fagið í KVL í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan árið 2011. Hún er sjálfstætt starfandi. Kristbjörgu finnst Meðferðargarðurinn hjá BUGL vera eitt af skemmtilegustu verkefnunum ásamt því að vera lærdómsríkt samstarfsverkefni.
Í tilefni dagsins var Kristbjörg spurð spjörunum úr.
- Áttu þér uppáhalds tré? Reynitrén fyrir fuglana og augað.
- Hvaða bók er á náttborðinu? Scandinavian RETRO er alltaf á borðinu.
- Er einhver landslagsarkitekt / arkitekt sem þér þykir skara fram úr? Áslaugarnar í fameliunni Trausta og Þorgeirsd.
- Hver er fallegasti staður á landinu? Kaldaklif.
- Hvert er uppáhalds útivistarsvæðið þitt? Langisandur.
- 30 x 30 eða 40 x 40? 30 x 30.
Þetta var Kristbjörg. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta. Verið eins og Kristbjörg.