FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

100 ára afmælissýning Jóns H. Björnssonar hefur opnað

Jón H. Björnsson – Frumkvöðull í íslenskum landslagsarkitektúr

100 ára afmælissýning – Pósthússtræti

Vorið 1952 snéri ungur maður aftur heim til Íslands, eftir að hafa lokið meistaraprófi  í garðplöntuuppeldi og landslagsarkitektúr, frá Cornell háskólanum í Bandaríkjunum.

Ungi maðurinn var Jón H. Björnsson – löngum kenndur við Alaska -; fyrstur Íslendinga til að nema landslagsarkitektúr og færa það nýjasta í þeim fræðum heim.  Hann kom með ameríska drauminn í farteskinu.

Jón H. var boðberi nýrra tíma og hugmynda og óþrjótandi að kynna þær og kenna. Hann hafði sterka sýn og orku, til að takast á við verkefni sem fáir landar hans höfðu jafnvel minnstu hugmynd um að væru til.  Hann var frumkvöðull síns tíma og langt á undan sinni samtíð.  Hann byggði upp fyrirtækið Alaska, sem annaðist m.a. ræktun garðagróðurs, hann lagði grundvöll að garðskipulagi hér á landi með því að  teikna garða fyrir þá sem föluðust eftir því og sá jafnvel um byggingu þeirra.  Hallargarðurinn í Reykjavík var eitt fyrsta verk Jóns H. eftir að hann kom úr námi.  Garðurinn telst til tímamótaverka í ísl. garðlistasögu.

Í byggingalistadeild Listasafns Reykjavíkur eru geymd yfir 600 verk eftir Jón H. Björnsson; verk sem lúta að landslagsarkitektúr og umhverfismótun hér á landi, en einnig að skrúðgarðyrkju og garðplöntufræðum. 

Nú þegar öld er liðinn frá fæðingu Jóns H. Björnssonar, vilja ísl. landslagsarkitektar heiðra minningu hans og þakka hið mikla brautryðjendastarf er hann lagði til fagstéttarinnar allrar með sýningu þessari sem standa mun fram í miðjan ágústmánuð, eða 6 vikur.  

Félag íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA) þakkar Reykjavíkurborg fyrir veittan stuðning við uppsetningu þessarar sýningar.

Fyrir hönd sýningarnefndar FÍLA,  

Ásta Camilla Gylfadóttir, landslagsarkitekt FÍLA

Ragnhildur Skarphéðinsdóttir, landslagsarkitekt FÍLA