FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Afmælisbarn dagsins, Hlynur Gauti Sigurðsson

Sjáið Hlyn.  Hann á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.

Hlynur útskrifaðist árið 2012 frá Kaupmannahafnar og er framkvæmdastjóri Landssamtaka skógareigenda (LSE) þar sem hann veitir ráðgjöf í tengslum við skógrækt og sinnir myndbandagerð. Skemmtilegustu verkefnin finnst honum allt sem tengist skógrækt. Hönnun skóga fyrir fólk, fé og frændur.

Í tilefni dagsins var Hlynur spurður spjörunum úr.

  • Uppáhalds tréð?  t.d. hlynur, veit ekki af hverju.
  • Hvaða bók er á náttborðinu? Mannlaus veröld, eftir Alan Weisman.
  • Falin perla hönnuð af landslagarkitekt, veist þú um svoleiðis? Skúmaskotið við lækinn í miðbæ Hvammstanga og Surtsey.
  • Hvert er uppáhalds útivistarsvæðið þitt?  Vel hyrtir skógar, lauf eða barr, sléttir eða flatir, gisnir eða þéttir. Þeir leynast lúmskt víða.
  • Fallegasti staður á landinu? Heimahagarnir, Fljótsdalshérað.
  • Uppáhalds tónlistargrúbba? No smoking band.
  • Viltu deila undarlegri staðreynd um þig? Et ego minus Latine, eo magis oblivisci me.

 

Þetta var Hlynur. Hann á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.  Verið eins og Hlynur.