FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Viðtal við Styrmi Níelsson hjá Danska landslagsarkitektafélaginu

Danska landslagsarkitektafélagið birti nýverið skemmtilegt viðtal hinn íslenska Styrmi Níelsson. Í viðtalinu fjallar hann meðal annars um lokaverkefnið sitt ‘Emotional Ecologies – Tracing the Role of Landscape Architecture in a Shifting Landscape’, framtíðina og félagsaðild sína að danska landslagsarkitektafélaginu.

Styrmir útskrifaðist sem landslagsarkitekt frá Kaupmannahafnarháskólanum í apríl 2026. Hann hóf nýlega störf við sænsku arkitektúrstofuna FOJAB, sem ætti að vera íslendingum vel kunn eftir að hafa borið sigur úr býtum í samkeppni Reykjavíkurborgar og Betri samgangna um Keldnalandið.

Viðtalið má finna í heild sinni á heimasíðu danska félagsins Styrmir Níelsson – Danske Landskabsarkitekter Danske Landskabsarkitekter

Styrmir Níelsson