Skipulagssamkeppni – Akureyrarvöllur og nágrenni
Tilkynnt hefur verið um opna framkvæmdasamkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis sem Akureyrarbær efnir til í samvinnu við Arkitektafélag Íslands (AÍ).
Samkeppnissvæðið
Samkeppnissvæðið er fyrrverandi íþróttaleikvangur Akureyrar og liggur rétt norðan við miðbæ Akureyrar í nálægð við höfn, verslunarkjarna Glerársvæðis og býður upp á tækifæri til áhugaverðrar þróunar sem styrkt gæti miðbæjarsvæði Akureyrar með því að tengja saman suður og norðurhluta þess.
Meginmarkmið
Meginmarkmið samkeppninnar er að ná fram sem bestri heildarlausn sem yrði forsenda fyrir nýju deiliskipulagi fyrir svæðið. Markmið er að svæðið styrki og tengi miðbæ Akureyrar við önnur svæði. Óskað er eftir hugmyndum að framtíðarþróun svæðisins sem einkennist að virðingu við staðareinkenni, metnaðarfullum arkitektúr bygginga og útisvæða, bíður upp á fjölbreytt mannlíf og styður við náttúrugæði svæðisins. Leitað er eftir raunhæfum tillögum sem gefa svæðinu fallegt, gróskumikið og spennandi heildaryfirbragð í sátt við umhverfi og sögu Akureyrarbæjar.
Áherslur dómnefndar
- Heildaryfirbragð, notagildi, vandaður arkitektúr bygginga og útisvæði sem taka mið af staðaranda og veðurfarsskilyrðum.
- Uppbygging miðsvæðis sem styrki núverandi innviði bæjarins og tengir hverfahluta.
- Aðgengis-, umferðar- og öryggismál leyst og tengd stígakerfi Akureyrarbæjar.
- Nýti sögu Akureyrarvallar og kennileiti svæðisins s.s. klappir og gróður.
- Umhverfissjónarmið og sjálfbærni við hönnun og efnisval.
- Vinni með og dragi úr áhrifum Glerárgötu (þjóðvegur 1).
Verðlaunafé
- verðlaun eru kr. 6.000.000,-
- verðlaun eru kr. 3.000.000,-
- verðlaun eru kr. 1.000.000,-
Dómnefnd
Tilnefndir af Arkitektafélagi Íslands:
- Borghildur Sölvey Sturludóttir – Arkitekt FAÍ
- Fríða Björg Eðvarðsdóttir – Landslagsarkitekt FÍLA
Tilnefndir af Akureyrarbæ:
- Halla Björk Reynisdóttir – Forseti bæjarstjórnar og bæjarfulltrúi L-lista
- Hlynur Jóhannsson – Bæjarfulltrúi M-lista
- Sindri Kristjánsson – Varafulltrúi S-lista
Trúnaðarmaður
- Björg Torfadóttir – Framkvæmdastjóri AÍ – trunadarmadur@ai.is
Öllum fyrirspurnum og athugasemdum skal beint til trúnaðarmanns.
Lykil dagsetningar
- 30. janúar 2026 – Keppnislýsing gefin út.
- 20. febrúar 2026 – Fyrirspurnartíma lýkur.
- 27. febrúar 2026 – Fyrirspurnum svarað.
- 24. apríl 2026 – Keppendur skila inn tillögum.
- 29. maí 2026 – Niðurstaða dómnefndar liggur fyrir.
Samkeppnisgögn má nálgast á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar: Skipulagssamkeppni – Akureyrarvöllur og nágrenni – Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
