FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Keldnaland – Hönnunarsamkeppni

Reykjavíkurborg og Betri samgöngur ohf. efna til samkeppni um þróun Keldnalands.  Um er að ræða 116 hektara landssvæði og er markmiðið að þar rísi spennandi nútímahverfi sem byggir á vistvænum samgöngum og stuðlar að kolefnishlutlausu borgarsamfélagi.

Samkeppnin sem er öllum opin, fer fram í tveimur þrepum og er viðhöfð nafnleynd í báðum þrepum. Í stað þess að kalla eftir hönnunarlausnum sem sýna ítarlegt heildarskipulag fyrir allt svæðið, þar sem allt er leitt til lykta, eiga keppendur að leitast við að setja fram ramma um megin innviði, svo sem Borgarlínu og græn svæði og raunhæfa áætlun um þróun og uppbyggingu svæðisins og lykil hönnunarviðmið.

Samkeppnisgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar https://utbod.reykjavik.is/. Keppendur þurfa að skrá sig inn á vefinn til þátttöku til að tryggja að allar upplýsingar varðandi samkeppnina berist þeim.

Fyrra þrepi líkur 19. apríl 2023, kl. 15:00. Gert er ráð fyrir að allt að fimm teymi verði valin til að þróa tillögur á öðru þrepi.  Greidd verður 50.000 evru þóknun fyrir vinnu á öðru þrepi sem líkur 18. ágúst 2023.  Að auki verða veitt verðlaun að upphæð 50.000 evrur fyrir hlutskörpustu tillöguna.

Verkkaupi gerir ráð fyrir að semja við teymið bak við tillöguna sem dómnefnd telur sterkasta um ráðgjöf að lokinni keppni. Ráðgjöfin snýst um áframhaldandi mótun þróunaráætlunar og skipulagsáætlana með  skv. síðari ákvörðun, að því marki sem sérþekking teymisins nýtist verkkaupa.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Betri samgangna ohf