FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Íslensk verk í tímaritinu Landskab

Íslensk verk voru áberandi í nýjasta tölublaði danska landslagsarkitektatímaritsins Landskab.

Landslagsarkitektinn Ómar Ingþórsson og jarðverkfræðingurinn Jón Haukur Steingrímsson hjá EFLU skrifuðu um hönnun hraunvarnargarðanna á Reykjanesskaga, verk sem unnið var í kappi við tímann og við oft ótrúlegar aðstæður. Þórhildur Þórhallsdóttir hjá Landmótun fjallaði um ofanflóðavarnir og mikilvægi þess að þær falli vel inn í umhverfið, séu aðgengilegar, hafi útivistargildi og séu unnar í sátt og samlyndi við íbúa.

Tímaritið Landskab hefur verið gefið út síðan síðan 1920 en ristjóri þess er Christina Capetillo. FÍLA á fulltrúa í ritstjórn tímaritsins.

Forsíðumynd: Hlynur Sveinsson