Hönnunarsamkeppni um Laugarveg og Óðinstorg – Forval
Reykjavíkurborg, í samvinnu við Félag íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA), auglýsti eftir hönnuðum til þátttöku í forvali vegna hönnunarsamkeppni um endurgerð á yfirborði tveggja svæða, annarsvegar Laugavegar milli Snorrabrautar og Skólavörðustígs og hins vegar á Óðinstorgi.
Eftirfarandi hópar komust áfram úr forvali og taka þátt í hönnunarsamkeppninni:
Laugavegur.
- Landmótun
- Arkibúllan
- Dagný Land Design
- Landslag
- a2f arkitektar
- Arkís arkitektar
- Guðrún Ragna Yngvadóttir / Sindri Pétursson
Óðinstorg.
- Kurtogpi / Vulcan
- Basalt arkitektar
- Kanon arkitektar
- Hornsteinar
- Teiknistofan Tröð
- Suðaustanátta og arkitektur.is
- Trípólí
Frestun verður á afhendingu gagna þar sem ekki tókst að ljúka forvali á tilsettum tíma. Áætlað er að afhending keppnisgagna verður aðgengileg fyrir þátttakendur á vefnum www.hugmyndasamkeppni.is þann 25.september n.k.