FÍLA á Hönnunarmars
Þar sem hverfið lifnar – gönguferð um Urriðaholt 9. mars kl. 14.00
Á HönnunarMars mun Félag íslenskra landslagsarkitekta, FÍLA bjóða til leiðsagnar um Urriðaholt í Garðabæ, hverfi sem vakið hefur athygli fyrir metnaðarfullt skipulag þar sem lögð er áhersla á tengsl milli byggðar og náttúru. Í gönguferðinni verður sjónum beint að því hvernig landslagshönnun, græn svæði og leikrými móta hverfið og daglegt líf íbúa þess.
Gangan hefst við Urriðaholtsskóla þar sem lóðin verður skoðuð. Þaðan verður gengið um hverfið eftir grænum tengingum sem liggja í gegnum byggðina og tengja holtið við Urriðavatn. Á leiðinni verður meðal annars komið við á leikskólalóð Urriðabóls og opin svæði skoðuð þar sem sjá má hvernig rými fyrir leik, útivist og samveru hafa verið mótuð.
Leiðsögnin verður í höndum landslagsarkitekta sem segja frá hugmyndum og hönnun á bak við svæðin sem farið verður um og hvernig þau mynda samfellda heild í skipulagi hverfisins. Fjallað verður um rými milli bygginga – stíga, leiksvæði, gróður og blágrænar ofanvatnslausnir – og hvernig þau tengja hverfið saman.
Gestum verður einnig boðið kort af svæðinu með merktum viðkomustöðum og stuttum upplýsingum um það sem er áhugavert að skoða á leiðinni. Þannig geta þátttakendur gengið leiðina á eigin hraða og staldrað við á þeim stöðum sem vekja áhuga þeirra.
Svæðin sem heimsótt verða eru hönnuð af landslagsarkitektastofunum Landslagi, Landformi og Teiknistofu Norðurlands.
Viðburðurinn er opinn fólki á öllum aldri og eru barnafjölskyldur sérstaklega velkomnar. Gangan tekur um tvær klukkustundir.
Meira um viðburðinn á heimasíðu Hönnunarmars Leiðsögn um landslagsarkitektúr – Þar sem hverfið lifnar – HönnunarMars
