MÁLÞING – Borgarlandslag
Borgarlandslag
Framtíðarsýn og hönnun nærumhverfis í byggð.
Apríl er mánuður landslagsarkitektúrs á alþjóðavísu í ár hefur Félag íslenskra landslagsarkitekta, FÍLA, valið að skoða borgarlandslag. Staðfest er að landslag er hvarvetna mikilvægur þáttur í lífsgæðum fólks. Skv. Evrópska landslagssamningnum (ELC) sem Ísland undirritaði 2012, merkir orðið landslag: svæði sem fólk sér og fengið hefur ásýnd og einkenni vegna samspils náttúrulegra og/eða mannlegra þátta. Þannig má túlka orðið Borgarlandslag sem það landslag sem byggðir mynda með öllum þeim mannvirkjum sem þar finnast.
Á málþinginu 30. apríl nk. skiptum við áherslum málþingsins upp í þrjá hluta.
Í fyrsta hlutanum verður fjallað um gæði nærumhverfis þar sem við byrjum á því að heyra í Hjálmari Sveinssyni sem mun opna málþingið. Á eftir honum koma fulltúar þeirra sem unnu til verðlauna í tveimur hugmyndasamkeppnum um endurhönnun á yfirborði Laugavegis og nýjar útfærslur á Óðinstorgi. Það verður svo daninn Jeppe Aagard Andersen sem mun fjalla um að það fyrir hverja við erum að skapa fallegt nærumhverfi og afhverju það skiptir máli að vanda til verka. Þar sem við erum að vinna með fjórðu víddina sem er tíminn, en við erum að móta umhverfi okkar sem verður síðar umhverfi komandi kynslóða.
Í öðum hluta verður fjallað um börn og borgarumhverfi þar sem við fáum Lisu Klingwall frá Stokkhólmsborg til að fjalla um það hvernig skipulagsyfirvöld ætla sér að uppfylla ákvæði Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna og hvernig hægt er að eiga samráð við börn til að tryggja raunveruleg áhrif þeirra á nærumhverfi sitt í byggð. Í kjölfarið fáum við erindi frá Páli Jakobi Líndal þar sem hann mun fjalla um það hvaða aðstæður þurfi að skapa í byggðu umhverfi til að íbúarnir geti notið náttúrlegra svæða. Hvernig nærumhverfið getur stuðlað að sálfræðilegri endurheimt íbúanna, ef við hugum að því hvernig við mótum opin svæði í byggð eða nærri byggð.
Í loka hlutanum verður fjallað um hönnun og samráð, en það verður sífellt algengara að virkja íbúana inn í hönnunarferlið. Við fáum þrjá íslenska arkitekta til að fjalla um verkefni sem þeir hafa verið að fást við á síðustu misserum. En öll eiga þau það sameiginlegt að vera að vinna náið með notendum mannvirkjanna og umhverfisins sem þau eru að móta. Einnig hafa þau vakið athygli leikmanna í samfélaginu fyrir nýja strauma og sýn á nærumhverfið. Að lokum fáum við erindi frá einum eiganda á stofunni Topotek1 í Berlín, en stofan hefur meðal annars unnið að verkinu Superkilen í Nørrebro í Kaupamannahöfn. Verkefnið er afrakstur af hönnunarsamkeppni og í því var haft víðtækt samráð við ólíkir notendur og fólk með fjölbreyttann bakgrunn til að taka þátt í hönnunarferlinu og hafa áhrif á sitt nærumhverfi.
Á málþinginu er ætlunin að ræða mikilvægi þess að efla gæði í nærumhverfi þéttbýlis og með hvaða hætti hægt er að nota hönnun sem verkfæri til að ná fram þeim eiginleikum almenningsrýma er veita tækifæri til eflingar lýðheilsu íbúa, auka sjálfbæra þróun og náttúruvernd í byggðum og styrkingar á fjölbreyttri og oft staðbundinni menningarstarfsemi.
Fyrir hönd Félags íslenskra landslagsarkitekta
Hermann Georg Gunnlaugsson formaður FÍLA
Ljósmynd: Guðmundur J. Albertsson1 Comments
Comments are closed.
Pingback: Erindi á málþingi FÍLA |