FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Afmælisbarn dagsins, Stefán frá Deildartungu

Sjáið Stefán frá Deildartungu. Hann á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.

Stefán útskrifaðist frá KVL ágúst 2009. Stefán vinnur hjá Landlínum þar sem hann vinnur við deiliskipulagsáætlanir og breytingar á aðalskipulagsáætlunum – aðallega innan Borgarbyggðar, Skorradalshrepps og Hvalfjarðarsveitar.  Stefán var áður garðyrkjustjóri Golfklúbbs Reykjavíkur þar sem hann sá um allt garðyrkjutengt, annað en grasið.

Í tilefni dagsins var Stefán spurður spjörunum úr.

  • Skemmtilegustu verkefnin? Skemmtilegasta verkefnið hingað til var að bæta umhverfi Golfskálans á Korpúlfsstöðum. Mér finnst skemmtilegast að eiga við hönnunarvekefni sem ég fæ að fylgja eftir í gegn um framkvæmd.
  • Uppáhalds tréð? Selja, því hún er svo fínleg og með fallegan börk, nei Ilmbjörk því það voru einu tréin í garðinum heima, nei japanshlynur því hann er svo léttur en sperrtur, nei alaskaösp því hún er svo dugleg, nei  ég get ekki valið – mér finnst öll tré æði.
  • Uppáhalds bíómynd hlaðvarp eða útvarpsþáttur? Ég nenni ekki að horfa á bíómyndir. Boardgame Design Lab, Boardgame Breakfast, Rhado Talks Through, Bicycle Coalition, Í ljósi sögunnar.
  • Falin perla hönnuð af landslagsarkitekt börnum, veist þú um svoleiðis? Börn bræðra minna, í Deildartungu, hafa hannað og byggð útileiksvæði í skjólbelti á landareigninni. Einn skemmtilegasti staður sem ég kem á.
  • Hvert er uppáhalds útivistarsvæðið þitt? Mér finnst best að stunda útivist í Deildartungu, en það flokkast varla sem útivistarsvæði. Ætli það sé þá ekki Laugardalurinn í Reykjavík.
  • Fallegasti staður á landinu? Gamlahússgarðurinn í Deildartungu.
  • Uppáhalds tónlistarmaður? spilarýnir? Tom Vasel, Zee Garcia, Rahdo, Chaz Marler, Mandi Hutchinson.

 

Þetta var Stefán. Hann á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta og á yfir 100 borðspil. Verið eins og Stefán.