Afmælisbarn dagsins, Lilja Kristín Ólafsdóttir
Sjáið Lilju. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.
Lilja útskrifaðist árið 2008 frá UMB Asi Noregi og vinnur í dag hjá Yrki arkitektum. Helstu verkefni Lilju eru skólalóðir, leiksskólalóðir, gatnahönnun, breytingar á aðalskipulagi og fleira …og fleira.
Lilja hefur mjög gaman af því, þessa dagana, að hanna eina minnstu götu í Reykjavík, Haðarstíg. Þetta er lítil þröng gata sem hefur mikinn sjarma og allt það venjulega vesen sem ein gata hefur að geyma ?
Einnig eru nokkuð verkefni henni ofarlega í huga af ýmsum ástæðum og má þar nefna Borgartúnið, Eldheima og Brimketil.
Í tilefni dagsins var Lilja spurð spjörunum úr.
- Áttu þér uppáhalds tré? Linditré er fallegt.
- Uppáhalds bíómynd? Bourne myndirnar, skemmtilegt maraþon.
- Er einhver landslagsarkitekt, arkitekt eða hönnuður sem þér þykir skara fram úr? Margir góðir hönnuðir……erfitt.
- Hver er fallegasti staður á landinu? Þórsmörk.
- Hvert er uppáhalds útivistarsvæðið þitt? Heimaey og Hrútafjörður, enda eyði ég stórum hluta frítímans þar.
- Uppáhalds tónlistamaður? U2.
Þetta var Lilja. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta. Lilja kann að spranga og getur það ennþá. Verið eins og Lilja.