Afmælisbarn dagsins, Guðbjörg Guðmundsdóttir
Sjáið Guðbjörgu. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.
Guðbjörg lærði fagið í SLU í Alnarp og útskrifaðist þaðan árið 2008. Hún vinnur hjá Landform ehf á Selfossi við deiliskipulagsbreytingar og þykir langskemmtilegast að vinna með landslagsgreiningar.
Í tilefni dagsins var Guðbjörg spurð spjörunum úr.
- Uppáhalds íslenski rithöfundurinn? Áslaug Jónsdóttir
- Helstu áhugamál? Ljósmyndun og hestamennska
- Hvað dettur þér fyrst í hug þegar þú heyrir orðið „mosi“? Ráðhús Reykjavíkur
- Fallegasti staður á landinu? Goðdaladalur
Þetta var Guðbjörg. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta. Verið eins og Guðbjörg.