Útgáfuhóf
Fimmtudaginn 4. október var haldið útgáfuhóf í tilefni þess að Einar E Sæmundsen og Hið íslenska bókmenntafélag gáfu út bókina Að búa til ofurlítinn skemmtigarð. Íslensk garðsaga – landslagsarkitektúr til gagns og prýði.
Fjölmennt var í hófinu eins og eftirfarandi myndir sýna.
Jón Sigurðsson og Einar í bakgrunni.
Þessir ungu herramenn spiluðu og sungu
Gestir taka lagið, Fyrr var oft í koti kátt
Tveir góðir félagar Einar og Reynir.
Einar og Þráinn með bókina góðu.