FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Afmælisbarn dagsins Íris Reynisdóttir

Íris lærði fagið í Kaupmannahafnarháskóla og útskrifaðist þaðan árið 2010. Í lok árs byrjaði Íris að vinna á Landmótun sf. Helstu verkefni Írisar hafa verið hönnun skóla-og leikskólalóða og hefur hún einnig komið að öðrum verkefnum s.s hönnun gatna og yfirborðsvatnslausna. Henni finnst öll verkefni hafa verið skemmtileg og gefandi.

Í tilefni dagsins var Íris spurð spjörunum úr.

  • Uppáhalds íslenski hönnuðurinn?  Það eru svo margir flottir hönnuðir, en á Landmótun eru flottir hönnuðir, og vill einnig nefna hönnuði á Landslagi og Basalt. 
  • Uppáhalds plantan? Þetta er erfið spurning því ég get engan veginn gert upp á milli, allar plöntur eru uppáhalds !  En ofarlega í huga er írisin sem kemur kannski ekki á óvart (innskot: vefstjóri hugsar þá hvort að reynirinn sé hennar uppáhalds tré ?)
  • Þriðjudagsdrykkurinn? Coke Zero alla daga allan ársins hring – hressi bætir og kætir ?
  • Hvað dettur þér fyrst í hug þegar þú heyrir orðið „lauf“?  Skógur og þyturinn í laufunum
  • Fallegasti staður á landinu? Leirulækjarsel á Mýrum, Grenjadalur og Langárdalur
  • Hvaða bók er á náttborðinu?„Beginners guide to photography“ og minnisbækur

 

Þetta var Íris. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.  Verið eins og Íris.