FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Konan og garðurinn – í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð. Laugardaginn 20. júlí nk.

Einar E. Sæmundsen landslagsarkitekt flytur fyrirlesturinn:
Konan og garðurinn í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð laugardaginn 20. júlí klukkan 15.00.

Fyrirlesturinn er öllum opinn og að honum loknum eru kaffiveitingar.

Skammt innan við Kvoslæk í Fljótshlíðinni er Guðbjargargarður í Múlakoti – landsfrægur garður frá 1897 sem er opinn gestum.

Einar E. Sæmundsen landslagsarkitekt (f 1941) var einn stofnenda teiknistofunnar Landmótunar, um hríð garðyrkjustjóri hjá Kópavogsbæ og dósent í hlutastarfi við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri þar sem hann hefur kennt landslagsarkitektúr, garðhönnun og umhverfisskipulag.

Einar E. Sæmundsen er höfundur bókarinnar Að búa til ofurlítinn skemmtigarð sem Hið íslenska bókmenntafélag gaf út undir lok síðasta árs.

Bókin er einstakt yfirlitsverk um sögu og þróun íslenskrar garðhönnunar eða landslagsarkitektúrs. Þar er umhverfismótunin sett í samhengi við rætur íslenskrar menningar og tengd alþjóðlegum straumum og stefnum. Bókin er ríkulega skreytt myndum og teikningum og reisir Einar fyrirlestur sinn á henni.

Einar E