FÉLAG ÍSLENSKRA LANDSLAGSARKITEKTA

Afmælisbarn dagsins, Margrét Sigurðardóttir

Sjáið Margréti. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta.

Margrét útskrifaðist árið 1995 frá Sveriges Landbruksuniversitet. Margrét vinnur á eigin vegum í dag og hefur í gegnum tíðina unnið, meðal annars, að Norðurbergi/Lækjarskóla/Hörðuvöllum og Áslandsskóla. Stækkun og endurbætum á Grasagarði Reykjavíkur.  Verkefnastjórnun Betri hverfa ásamt ýmsum verkefnum – stefnumótun í höfuðborginni, leiksvæðastefnu, trjáræktarstefnu ofl.

Uppáhalds verkefni Margrétar voru þó stækkun og endurbætur á Grasagarði Reykjavíkur ásamt vinnu við leiksvæðastefnu.

Í tilefni dagsins var Margrét spurð spjörunum úr.

  • Áttu þér uppáhalds tré? Ilmbjörkin alskonar -fögur, dugleg og  óútreiknanleg.
  • Uppáhalds bíómynd? Kona fer í stríð og útlenska dásemdin Amélie.
  • Er einhver landslagsarkitekt, arkitekt eða hönnuður sem þér þykir skara fram úr? Margrét Sigurðardóttir.
  • Hver er fallegasti staður á landinu? Hvannadalshnjúkur.
  • Hvert er uppáhalds útivistarsvæðið þitt? Hallormsstaðaskógur.
  • Uppáhalds tónlistamaður? Louis Armstrong.  (innskot: Margrét hvetur vefstjóra til að taka sér gæðastund og hlusta. Vefstjóri hvetur félagsmenn til þess sama. Klikk hér og njótið, þetta er klassískur kaffibolli.)
  • Viltu deila undarlegri staðreynd um þig? Hm. Tjah. Legg það ekki á ykkur hér og nú ?

 

Þetta var Margrét. Hún á afmæli eins og Félag íslenskra landslagsarkitekta. Verið eins og Margrét.